Jæja gott fólk, á
maður að segja frá síðustu helgi.
Ég fór á Hólmavík á
ættarmót og komst að því að familían er ekkert minna skrýtin en
síðast. Það var farið inn að Kleifum í Kaldbaksvík þar sem afi
og amma bjuggu og skoðað sig um þar. Bærinn stendur ekki
lengur en þarna eru sumarhús í staðinn. Planið var að labba upp á
Kaldbakshornið en sökum þoku...og já að sjálfsögðu þynku hjá
nokkrum varð ekki af því enda hefði lítið sést niður. Í
staðinn var ákveðið að fara inn að Byrgisvík þaðan sem afi Jósteinn
var. Enginn er bærinn þar heldur lengur en bæjartóftirnar eru þarna
svo maður getur séð hvar voru hús. Við Anton löbbuðum að þeim og
skoðuðum, fljótlega þurfti minn sonur að komast á salerni til að
skila stykkjunum sínum svo við löbbuðum af stað uppeftir að bílunum
aftur, hann var orðinn svo þreyttur þessi elska að þegar við vorum
hálfnuð á leiðinni til baka og mamman orðin eilítið þreytt á að
hlusta á vælið sagði hann "mamma, við skulum aldrei fara þangað
aftur" greynilega ekki vel upp lagður í svona þessi
elska.
Um kvöldið var svo
komið saman í bragganum á Hólmavík og krakkarnir sáu um
skemmtiatriði. Minn sonur og Björgvin frændi létu sig sko ekki
vanta í það fjör og sýndu sína hæfileika í næstumþvíhandahlaupum og
hoppum og skoppum. Teknar voru alskyns hópmyndir og mikið fjör
þarna. Partýið færðist svo upp á tjaldstæði þegar líða tók á og
koma þurfti börnunum í háttin. Að sjálfsögðu var áfengi haft um
hönd og hefur það misjöfn áhrifin á fólkið. Tryggvi frændi tjáði
öllum sem heyra vildu að ef kvenfólkið hér væri ekki skylt honum
myndi hann reyna við það. Hann lánaði mér vetlingana sína,
Hólmfríði systir peysuna sína og hann og Rabbi pabbi hans hlýjuðu
okkur vel og vandlega þegar okkur var orðið kalt... TR stákar
Trrrrr og okkur verður aldrei kalt aftur... Það var skorað á Hörpu
frænku að toppa rappið hans Heiðars frá því á síðasta ættarmóti
þeirra þar sem hún gerði svo mikið grín að hans, hún ákvað að taka
því fyrir þá sem nenntu að vaka eftir því til klukkan 5 um nóttina.
Að sjálfsögðu vöktum við Hólmfríður, Tryggvi, Rabbi, Ísak og
fleirri eftir því, allt tekið á videó fyrir þá sem ekki gátu vakað
sökum elli. Tryggvi og Rabbi ákváðu að koma og kúra hjá okkur
Hólmfríði þegar við vorum farnar að sofa, það eina sem var slæmt
við það var að vindsængin var bara ein og hálf breidd og við vorum
semsagt 4 á tímabili og hver haldiði að hafi orðið undir...
auðvitað ég, Rabbi sá mig bara ekki undir sænginni svo ég hélt
niðri andanum þar til hann klöngraðist út aftur.
Morguninn eftir var
misgott ástandið á liðinu og vel hægt að hlæja að sumum. Við Ella
Magga og Birgitta ákváðum að vera lengur í útilegu með krakkana á
Hólmavík og hittum því alla daginn eftir, gátum skemmt okkur aðeins
yfir þessum þunnu að taka saman og svona, aldrei verra það. Við
héldum svo heim daginn eftir og haldiði ekki að ævintýrið hafi
haldið áfram þar. Við vorum rétt lagðar af stað heim, ákváðum að
fara Tröllatunguheiðina heim. Birgitta fór fremst, svo kom ég og
Ella Magga aftast af því að hún var með tjaldvagn. Við vorum rétt
að byrja að keyra upp á heiðina þegar ég sá að Ella Magga var ekki
fyrir aftan mig svo ég hægði á mér til að sjá hvort hún kæmi ekki
en aldrei kom hún svo ég stoppaði og sá þá að hún var stopp á
miðjum veginum og búin að losa tjaldvagninn frá. Ég beið smá til að
sjá hvað hún væri að gera en þar sem hún labbaði bara fram og til
baka á veginum snéri ég við og fór til hennar. Haldiði ekki
bara að tjaldvagninn hennar hafi brotnað í sundur!!!!! Við urðum að
kalla til Guðmund hennar Sissu frænku til að kíkja á þetta.
Tjaldvagninn var tættur í sundur og hlutar af honum fluttir inná
Hólmavík til að verða soðið saman aftur áður en hún gat haldið
ferðinni áfram.
Við Anton fórum á undan
en Birgitta og stelpurnar urðu eftir með Ellu Möggu.
Nú erum við Anton komin
í sæluna til Mömmu og co svo ég læt þetta duga í bili.